Framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum

Fimmtudaginn 13. mars 2003, kl. 23:52:02 (5030)

2003-03-13 23:52:02# 128. lþ. 100.37 fundur 636. mál: #A framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum# (verðjöfnun við útflutning) frv. 82/2003, Frsm. DrH
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 128. lþ.

[23:52]

Frsm. landbn. (Drífa Hjartardóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá landbn. um frv. til laga um breyting á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólaf Friðriksson frá landbúnaðarráðuneyti. Umsögn um málið barst frá Samtökum iðnaðarins.

Með frumvarpinu er landbúnaðarráðherra heimilað að greiða verðjöfnun við útflutning fullunninna vara er innihalda innlend landbúnaðarhráefni. Skal verðjöfnunin vera jöfn mismun á innlendu viðmiðunarverði og erlendu viðmiðunarverði hverrar tegundar hráefnis sem notað er við framleiðslu vörunnar.

Nefndin telur málið mjög þarft og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.

Sigríður Jóhannesdóttir, Guðjón Guðmundsson, Jónína Bjartmarz og Einar Oddur Kristjánsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Undir nál. rita Drífa Hjartardóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Karl V. Matthíasson, Þuríður Backman, með fyrirvara, og Sigíður Ingvarsdóttir.