Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Þetta eru góðar upplýsingar og það var við því að búast að stofnun sem er jafn vel stýrt og Orkustofnun væri búin að kippa þessum málum í liðinn.
Ég fjallaði hins vegar um þetta hér sem í rauninni hluta af almennri umfjöllun um það hvernig þessi mál eru til vandræða, eins og hv. þm. þekkir, á ýmsum sviðum í ríkisfyrirtækjum og ég tiltók sérstaklega tölvuþjónustu og tölvudeildir stofnana og ríkisfyrirtækja sem hafa verið þyrnir í augum m.a. Samtaka iðnaðarins þar sem ekki hefur tekist að ná utan um virðisaukaskattsmálin. Þrátt fyrir skýra löggjöf þar um virðist ekki hafa tekist að fylgja henni eftir með þeim hætti að þeir sem eru að vinna hér á markaði séu sáttir, og þetta er eitt af því sem er talið hafa staðið í vegi fyrir þróun ákveðinna frumkvöðlafyrirtækja sem ekki gátu fótað sig í samkeppni sem ekki var þó réttlátari en sú sem fór fram með þeim hætti að samkeppnisaðilarnir voru undanþegnir --- eða voru ekki undanþegnir í rauninni en komust undan virðisaukaskatti.