Uppsagnir eða mismunun í starfi vegna aldurs

Föstudaginn 14. mars 2003, kl. 23:23:19 (5181)

2003-03-14 23:23:19# 128. lþ. 102.25 fundur 34. mál: #A uppsagnir eða mismunun í starfi vegna aldurs# þál. 33/128, Frsm. ArnbS
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 128. lþ.

[23:23]

Frsm. félmn. (Arnbjörg Sveinsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. félmn. um till. til þál. um að spornað verði við uppsögnum eða mismunun í starfi vegna aldurs.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið umsagnir frá Biskupsstofu, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Landssambandi eldri borgara, Eyþingi, Öryrkjabandalagi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Kvenréttindafélagi Íslands, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Samtökum sveitarfélaga í Norðurlandskjördæmi vestra, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samtökum atvinnulífsins.

Í tillögunni er lagt til að Alþingi feli ríkisstjórninni að kanna á hvern hátt unnt er með lagasetningu að sporna við því að fólk sé látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur er með uppsögnum eða mismunun í starfi. Í því skyni verði skipuð nefnd með fulltrúum samtaka launafólks, auk fulltrúa stjórnmálaflokka á þingi, sem skal skila áliti innan árs.

Nefndin telur að hér sé um þarft málefni að ræða og leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Guðrún Ögmundsdóttir og Kristján Pálsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og undir nál. rita hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður og framsögumaður, Pétur H. Blöndal, Magnús Stefánsson, Ásta R. Jóhannesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Drífa Hjartardóttir og Jónína Bjartmarz.