Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á matvælaverði og hagsmunamálum neytenda. En ég vil spyrja þingmanninn hvort hún sé í málflutningi sínum ekki að vissu leyti komin að niðurstöðu um hvar skórinn kreppir í þessu máli. Það kom fram í málflutningi hv. þm., Rannveigar Guðmundsdóttur, að vöruflokkar sem fluttir eru inn til landsins eru dýrari en annars staðar, vöruflokkar sem við getum keypt á heimsmarkaði, og gerum, svo sem ávextir og mjölvara öll og að vissu leyti grænmeti. Þá beinast spjótin náttúrlega fyrst og fremst að vörudreifingunni í landinu og miklu síður að framleiðendum. Að vissu leyti geta spjótin líka beinst að því hvernig við skattleggjum hér á hinu háa Alþingi.
Þetta verður því í meira lagi flókin úttekt, að mér finnst. Ég spyr þingmanninn hvort hún sé ekki búin að þrengja sviðið ansi mikið með málflutningi sínum og gögnum sínum, þegar þessar tölur liggja fyrir sem að vissu leyti hafa þó verið dregnar í efa. En ég held að hlutföllin séu nokkurn veginn þau sem hv. þm. setti fram.
Það athyglisverðasta í málinu er að vöruflokkar sem lúta lögmálum heimsmarkaðsverðs í innflutningi til landsins skuli vera hærri en það sem verið er að gagnrýna framleiðendur innan lands fyrir að framleiða og setja í dreifingu. Það finnst mér mergurinn málsins. Þá erum við komin ansi langt í þessari vinnu sem nefndin á að hefja.