Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Hv. 1. flm. þessar tillögu, Rannveig Guðmundsdóttir, hlýtur að vera ánægð með þær undirtektir sem hér koma fram í andsvörum tveggja stjórnarliða við þá tillögu sem við flytjum. Ég vil fyrir hönd þingflokks Samfylkingarinnar þakka fyrir þessar góðu undirtektir sem vekur okkur vonir um að þessi brýna og þarfa tillaga verði samþykkt. Það vekur vissulega einnig athygli þegar hver stjórnarliðinn á fætum kemur hér upp og lýsir verulegum áhyggjum af fákeppni og samþjöppun valds í þjóðfélaginu en situr svo í ríkisstjórn sem hefur stuðlað að því að fákeppni og samþjöppun valds og auðs hefur aukist verulega á síðustu árum í þjóðfélaginu.
Við tökum sannarlega undir með hv. síðasta ræðumanni um fátækt bændanna. Hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir hefur margítrekað að við þurfum einmitt að skoða hvernig matvælaverð þróast frá bændunum sem framleiða landbúnaðarvörurnar fram að því að varan kemur á borð neytenda. Það er einmitt það sem við viljum sýna fram á með þessari tillögu.
Ég vil spyrja hv. þm. um hvað hún vilji gera til að taka á þessum milliliðum, t.d. í landbúnaðarkerfinu. Hvað vill hún gera til að koma í veg fyrir fákeppni og samþjöppun auðs og valds í þjóðfélaginu? Hv. þm. situr í ríkisstjórn sem hefur stuðlað að því að hér hefur samþjöppun aukist verulega, bilið milli ríkra og fátækra í þjóðfélaginu hefur vaxið þannig að það eru orðnar 20--30 fjölskyldur sem eiga Ísland, fá nokkur hundruð milljónir upp í einn milljarð bara í fjármagnstekjur af eignum sínum á meðan 11--15 þúsund manns búa við algjör sultarkjör. Hvað vill þingmaðurinn gera í þessu máli? Þingmaðurinn hefur greinilega áhyggjur af fákeppni og auðsöfnun til handa fámennum hópi í þjóðfélaginu, en hvað vill hv. þm. gera?