Matvælaverð á Íslandi

Fimmtudaginn 03. október 2002, kl. 12:56:32 (86)

2002-10-03 12:56:32# 128. lþ. 3.1 fundur 3. mál: #A matvælaverð á Íslandi# þál., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur, 128. lþ.

[12:56]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Samkeppnisstofnun ber alltaf við fjárskorti þegar að er fundið. En auðvitað verða þeir menn sem þar starfa sjálfir að meta hvað þeir telja þýðingarmikið. Ef það er svo að Samkeppnisstofnun telur það svona minni háttar mál að fylgjast með þróun matvælamarkaðar í ljósi þess vísitölusamanburðar sem við höfum hér séð þá lýsir það svolítið Samkeppnisstofnun.