Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. nefndi sérfræðikostnaðinn og lyfjakostnaðinn í fyrsta lagi. Vissulega hefur sérfræðikostnaðurinn farið fram yfir heimildir fjárlaga á undanförnum árum. Það er búið að endurskipuleggja samningsumboðið við sérfræðinga með nýjum lögum frá Alþingi sem samþykkt voru liðið vor. Sú vinna er komin í fullan gang í framhaldi af þeim lögum og á að veita okkur meiri möguleika til að hafa yfirsýn í þessum efnum. Ég veit að sú samninganefnd hefur unnið mjög gott starf í sumar undir forustu forseta Kjaradóms.
Varðandi föst fjárlög verða breytingar að byggjast á DRG-kerfinu sem verið er að vinna á Landspítalanum, kostnaðargreiningu einstakra þátta. Við hv. varaformaður fjárln., Einar Oddur Kristjánsson, vorum oft búnir að tala um þetta þegar við sátum í fjárln.
Varðandi öldrunarmálin (Forseti hringir.) þá er unnið að þeim í samstarfsnefnd um málefni aldraðra. Ég geri grein fyrir þeim nánar í síðari ræðutíma mínum.