Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Þessi spurning endurómar hluta af umræðunni hér í dag. Menn tala um að safnast hafi upp skuldir vegna viðskiptahalla fyrri ára. Vissulega er það rétt. En þeir borga þær skuldir sem tóku þær á sig og ríkissjóður er ekki nema að litlu leyti í þeim hópi vegna þess að ekki hefur verið halli á ríkissjóði. Hann hefur að vísu tekið ákveðin lán eins og vegna Seðlabankans í sérstökum tilgangi og stendur auðvitað við sínar skuldbindingar í því. En ég get ekki svarað fyrir um það hvernig fyrirtæki, sveitarfélög, einstaklingar eða fjármálastofnanir hyggjast greiða niður sínar skuldir. Hver og einn verður að vera ábyrgur fyrir því og ég efast ekkert um að þeir sem tóku þau lán muni borga þau. Það hefur hingað til ekki verið vandamál að standa í skilum og íslenska þjóðarbúið hefur gott orð á sér vegna þeirra mála.