Einkavæðingarnefnd

Þriðjudaginn 08. október 2002, kl. 13:51:00 (316)

2002-10-08 13:51:00# 128. lþ. 6.4 fundur 4. mál: #A einkavæðingarnefnd# þál., ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 128. lþ.

[13:51]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Hér er til umræðu till. til þál. um að einkavæðingarnefnd verði leyst frá störfum og frekari einkavæðing stöðvuð. Ég held að það sé almennt álit margra í samfélaginu að það einkavæðingarferli sem fylgt hefur verið á undanförnum árum, eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson kom svo vel inn á í ræðu sinni hér áðan, verður að stöðva og það verður að staldra við og finna út úr því hvort menn séu þar á réttri braut hvað málsmeðferð varðar. En eins og alkunna er er Vinstri hreyfingin -- grænt framboð alfarið á móti því að einkavæða opinber fyrirtæki, stoðþjónustu landsins eins og Landssímann, heilbrigðisþjónustuna, skóla o.s.frv. Við teljum að brýna nauðsyn beri til að hverfa af þessari braut og þeir sem aðhyllast einkavæðingu skoði sinn gang í nýju ljósi og skoði hvernig gengið hefur varðandi einkavæðingarmál fram til dagsins í dag.

Það er ekki heppilegt fyrir landið að svokallaðir viðskiptaaðilar í þjóðfélaginu séu uppteknir af því að komast yfir eigur ríkisins í svo ríkum mæli sem verið hefur. Það er eðlilegra og betra fyrir landið að þeir sem hafa það í sér og vilja ástunda verslun og viðskipti setji hugann á nýja hluti, framþróun á nýjum sviðum, en séu ekki með allan hugann við það að komast yfir það sem þjóðfélagið hefur komið á laggirnar, og notað til þess áratugi í sumum tilvikum.

Í greinargerð með þáltill. segjum við: Í kjölfar þess að nefndarmaður í einkavæðingarnefnd ríkisstjórnarinnar sagði sig úr nefndinni vegna þess að hann taldi vinnubrögð hennar mjög ámælisverð hefur forsrh. óskað eftir því við Ríkisendurskoðun að á hennar vegum fari fram úttekt á tilteknum verkþáttum í starfi nefndarinnar. Fyrr á árinu beindi forsætisnefnd Alþingis, að beiðni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, því til Ríkisendurskoðunar að ,,hún geri ítarlega úttekt á störfum einkavæðingarnefndar með sérstakri hliðsjón af einkavæðingu Landssímans hf. sem um leið verði könnuð sérstaklega``.

Enda þótt erindi þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs hafi á sínum tíma beinst fyrst og fremst að Landssíma Íslands hf. kom skýrt fram að jafnframt ætti að kanna einkavæðingarferlið almennt og aðkomu einkavæðingarnefndar að því eftir því sem tilefni væri til. Í beiðni þingflokksins um þetta efni frá 30. janúar 2002 segir orðrétt: ,,Athuguð verði vinnubrögð, verklag og stjórnskipuleg staða einkavæðingarnefndar, kostnaður við störf hennar bæði vegna eigin verkefna og aðkeyptrar vinnu, hvort útgjöld nefndarinnar hafi verið í samræmi við fjárheimildir, hvernig staðið er að ákvarðanatöku af hálfu nefndarinnar og annað sem efni standa til.`` Enginn sem fylgst hefur með einkavæðingarferlinu og störfum einkavæðingarnefndar getur velkst í vafa um að þar er margt sem þarf athugunar við. Í nefndinni hafa átt sæti einstaklingar sem eru nátengdir atvinnulífinu og þá einnig þeim fyrirtækjum sem hafa hagnast á einkavæðingunni. Hörð gagnrýni, m.a. á Alþingi, hefur komið fram vegna mjög hárra greiðslna til nefndarmanna en einkum hafa vinnubrögð nefndarinnar verið gagnrýnd, m.a. af Ríkisendurskoðun, og nú síðast af einum nefndarmanna sem segist aldrei hafa kynnst eins slæmum og ámælisverðum vinnubrögðum og tíðkist í nefndinni. --- Þetta eru stór orð, virðulegi forseti.

Um einkavæðinguna sem og þá pólitísku stefnu sem hún er byggð á hafa verið mjög skiptar skoðanir í þjóðfélaginu. Á 125. löggjafarþingi var samþykkt þáltill. frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs, sem Ögmundur Jónasson var fyrsti flm. að, um að sérstakri nefnd skyldi falið að skoða verkaskiptingu hins opinbera og einkaaðila en því miður hefur það starf tafist. Til viðbótar pólitískum ágreiningi er einnig ljóst að mikið skortir á að aðgerðir í þessum efnum hafi verið undirbúnar sem skyldi, stefna mótuð og skýrar verklagsreglur ákveðnar fyrir fram. Sú gagnrýni sem hér er til umræðu lýtur að öllu þessu en þó sérstaklega óöguðum og óvönduðum vinnubrögðum og hugsanlega einnig hagsmunaárekstrum í starfi. Þá hafa vaknað ýmsar spurningar um samskipti einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar, eftirlit og aðhald hennar gagnvart þeim stofnunum í almannaeign sem gerðar hafa verið að hlutafélagi. Þannig bárust fréttir af ágreiningi og átökum á milli einkavæðingarnefndar annars vegar og þeirra aðila sem falin var umsjá Landssíma Íslands hf. hins vegar. Hvorki Alþingi né almenningur hefur verið upplýstur um þennan ágreining og aðkomu einkavæðingarnefndar og afskipti hennar af Landssímanum hf.

Allt þetta þarf að upplýsa og þykir þingflokki Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs ekki annað forsvaranlegt en að einkavæðingarnefnd verði leyst frá störfum þegar í stað og einkavæðingarferlið stöðvað, jafnt breytingar á rekstrarformi fyrirtækja sem bein sala, þar til úttekt Ríkisendurskoðunar liggur fyrir. Gildir það um athugunina sem embættið lætur nú fara fram samkvæmt beiðni forsrn. og einnig þá rannsókn sem framkvæmd er að beiðni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs. Það á svo að vera Alþingis og ríkisstjórnar þegar þar að kemur að taka ákvarðanir um framhaldið. Í þeim efnum liggur skýr stefna Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs fyrir. Flokkurinn er andvígur einkavæðingu í velferðarþjónustunni og einnig einkavæðingu mikilvægra almannaþjónustufyrirtækja en verkaskiptingu hins opinbera og einkaaðila, sem og leikreglur í samskiptum þeirra, er eðlilegt og þarft að yfirfara og ræða.