ÓI fyrir ÍGP

Fimmtudaginn 10. október 2002, kl. 10:31:27 (415)

2002-10-10 10:31:27# 128. lþ. 8.94 fundur 167#B ÓI fyrir ÍGP#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 8. fundur, 128. lþ.

[10:31]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Ísólfur Gylfi Pálmason, 5. þm. Suðurl., er farinn til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 1. varamaður á lista Framsfl. í Suðurl., Ólafía Ingólfsdóttir, taki sæti hans á Alþingi á meðan.

Virðingarfyllst,

Kristinn H. Gunnarsson,

formaður þingflokks framsóknarmanna.``

Ólafía Ingólfsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.