Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Það er rétt að rjúpnaveiðitíminn hefst á morgun. Það á að grípa til mjög víðtækra aðgerða til að vernda rjúpnastofninn. Fimm ára plan mun hefjast á næsta ári. Þó munum við grípa til þess núna strax að stækka fjórfalt hið friðaða svæði í nágrenni höfuðborgarinnar þar sem ekki má veiða rjúpu. En á næsta ári og næstu fimm árum verður bannað að selja rjúpu, þ.e. ef þingið samþykkir slíka lagaheimild. Tíminn til veiða verður takmarkaður um 20 daga og við erum að skoða í umhvrn. hvort við getum breytt lögum varðandi farartækin og skotvopnin sjálf, en veruleg brögð eru að því að menn séu með hálfsjálfvirkar haglabyssur, taka pinnann úr og særa mjög mikið af fugli vegna þessa.
Það eru líka talsverð brögð að því að menn keyri utan vega en það er bannað. Þegar menn eru á veiðum eiga þeir að halda sig á vegum og merktum vegarslóðum. Ekki er nóg að líta til náttúruverndarlaganna þar af því að þar kemur fram, eins og hv. þm. sagði, að menn geti keyrt utan vega ef snjór er eða frosin jörð, en samkvæmt villidýralögunum er það bannað. Sá sem fer til veiða verður að vera á vegarslóða og má ekki veiða fyrir utan hann nema fara þangað gangandi. Menn mega ekki veiða með byssu innan 250 m línu frá vegi eða vegarslóða. Því kemur til greina að okkar mati að herða á þessum lögum með því að færa ákvæðin úr villidýralögunum yfir t.d. í náttúruverndarlögin af því að brögð eru að því að menn misskilji þetta vegna þess að ákvæðin eru ekki samhljóða í villidýralögunum og í náttúruverndarlögunum.
Ég vil nota tækifærið hérna af því að veiðitíminn er að byrja og skora á veiðimenn að hlífa landinu og gæta hófs í veiðunum af því að stofninn er í lægð og það er brýnt að menn kunni sér hóf við slíkar aðstæður.