Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir þessar skýringar. Ég hef svo sem skilning á því, fyrst menn voru á annað borð að vinna að allsherjarendurskoðun á barnalögunum, að beðið var með þetta atriði. Það hefði auðvitað verið hægt að samþykkja þetta mun fyrr ef frv. mitt, sem komið hafði fyrir þingið a.m.k. í tvígang, hefði verið samþykkt. Engu að síður fagna ég því að þetta er komið hér og mun verða að lögum, þ.e. aðgangur feðra að barnsfaðernismálum.
Ég sá náttúrlega þessar athugasemdir í greinargerðinni með barnalagafrv. hæstv. ráðherra. Ég vil vitna aftur í niðurstöðu forsjárnefndar sem ráðherra skipaði í maí 1997 sem skilaði niðurstöðu sinni í júní 1999. Sú forsjárnefnd kemst að þeirri niðurstöðu að sameiginleg forsjá skuli gerð að meginreglu. Rök fyrir því er að finna í þeirri skýrslu og sú skýrsla er á heimasíðu dómsmrn. þannig að menn geta skoðað hana. Ég legg til að allshn. fari yfir rök forsjárnefndarinnar og vegi þau og meti. En ég tel skipta máli að þessi regla verði sett í lög hér á landi eins og ég hef áður sagt.