Lagaákvæði er varða samgönguáætlun o.fl.

Fimmtudaginn 17. október 2002, kl. 10:34:07 (645)

2002-10-17 10:34:07# 128. lþ. 13.2 fundur 182. mál: #A lagaákvæði er varða samgönguáætlun o.fl.# (gildistaka laganna) frv., Frsm. meiri hluta GHall (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur, 128. lþ.

[10:34]

Frsm. meiri hluta samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 73/2002, um breytingu á lagaákvæðum er varða samgönguáætlun o.fl.

Frv. er frá meiri hluta samgn. og hljóðar 1. gr. svo, með leyfi forseta:

,,28. gr. laganna orðast svo:

Lög þessi öðlast þegar gildi.``

Og 2. gr.:

,,Lög þessi öðlast þegar gildi.``

Í frv. til laga um breytingu á lagaákvæðum er varða samgönguáætlun o.fl. sem samþykkt var frá Alþingi samhliða frv. til laga um samgönguáætlun sl. vor var gert ráð fyrir að hafnaráð og flugráð sem skipuð voru samkvæmt þágildandi lagaákvæðum skyldu sitja út gildistíma núgildandi hafnaáætlunar og flugmálaáætlunar. Gildistími þessara áætlana er til 31. desember 2002. Þetta þýddi að breyttu hafnaráði og flugráði samkvæmt lögum nr. 73/2002, þar sem þátttaka fulltrúa atvinnulífsins er aukin, gefst hvorki tækifæri til að veita samgrh. umsögn um tillögu samgönguráðs að samgönguáætlun 2003--2014 né samgn. eftir að ráðherra hefur lagt tillöguna fyrir Alþingi.

Það er mat meiri hluta samgn. að eðlilegt sé og þarft að nýju hafnaráði og flugráði gefist kostur á að koma fram með ábendingar í tengslum við meðferð þingsins á samræmdri samgönguáætlun sem samkvæmt upplýsingum frá samgrn. verður lögð fram um miðjan nóvember nk.

Herra forseti. Nefndin gerir ekki ráð fyrir því að þessu máli verði vísað til nefndar.