Þuríður Backman (andsvar):
Herra forseti. Við getum sannarlega verið sammála um nauðsyn þess að hvetja til og stuðla að því að íbúaþing verði hluti af stjórnsýslu hvers sveitarfélags, um ákveðin verkefni, bæði stór og smá, helst ekki sjaldnar en einu sinni á ári til þess að auka lýðræðið og gera íbúana samábyrgari í samfélagi sínu.
En ég vil að það komi fram að mér þykir miður að í þessu sambandi skuli ekki hafa verið dregið sérstaklega fram í rauninni mikilvægi þeirrar hugmyndafræði sem er á bak við Staðardagskrá 21 og sem kemur, og þarf að koma, frá íbúunum og sveitarstjórnum sjálfum til þess að ná ákveðinni virkni. Ég hefði talið að hér þyrfti að koma inn í hvatning til sveitarstjórna um að taka upp það vinnuferli því það nær ekki bara yfir umhverfismál og sorp, það nær til allra þátta í hverju sveitarfélagi fyrir sig, bæði félagslega og varðandi rekstur og umhverfi. Ég sakna þess að sjá ekki svona hvatningu í því vinnuferli. Það er grasrótin. Það er frumkvæðið, það kemur ekki ofan frá. En ég fagna þessari tillögu um íbúaþingið eftir sem áður.