Velferðarsamfélagið

Þriðjudaginn 29. október 2002, kl. 16:51:25 (754)

2002-10-29 16:51:25# 128. lþ. 16.6 fundur 22. mál: #A velferðarsamfélagið# þál., ÖHJ
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 128. lþ.

[16:51]

Örlygur Hnefill Jónsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa langt mál um þessa ágætu tillögu sem hér er til umræðu. Ég tek undir það sem kom fram hjá flm. um að það er auðvitað ótækt að svo sé komið að atvinnuleysisbætur séu skattlagðar, skattleysismörkin ná ekki að verja þær. Það er enginn atvinnulaus að gamni sínu, ef svo má segja. Þetta er félagslegur vandi og það á að vera meginregla að ekki skuli skattleggja atvinnuleysisbætur.

Að öðru leyti tek ég undir það sem kemur fram í þessari þáltill. og legg til að hún fái góða umfjöllun í nefnd.