Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það er miður að ekki skuli mega leggja einfaldar og hlutlausar spurningar fyrir hæstv. ráðherra í þessum efnum þar sem ærin ástæða er til. Ég held að ráðherra ætti að velta þeim möguleika fyrir sér að gera Alþingi með formlegum hætti grein fyrir stöðu málsins og vanda þá greinargerð mjög í ljósi reynslunnar.
Talandi um orðaskipti um þessa hluti í fyrra þá minnir mig að hörðustu orðaskiptin hafi farið fram milli hæstv. ráðherra og Morgunblaðsins sem skóf ekkert utan af því að það teldi ráðherra hafa leynt upplýsingum og með villandi hætti tjáð sig um stöðu málsins gegn betri vitund miðað við það sem ráðherra átti að vera ljóst af samskiptum sínum við fyrirtækið Norsk Hydro.
Nú eru haldnar sambærilegar lofræður um ágæti Alcoa eins og á þeim tíma voru nákvæmlega haldnar um fyrirtækið Norsk Hydro.
Ég bendi líka á, herra forseti, að aðstæður breytast að ýmsu leyti hratt í þessum efnum. Menn þekkja til efnahagsaðstæðna í Bandaríkjunum. Menn horfa á lækkandi álverð sem hefur lengur verið í lágmarki en nokkurn tíma fyrr í sögunni. Nú eru eigendur Landsvirkjunar loksins að skipa starfshóp til að meta hina efnahagslegu áhættu sem m.a. er fólgin í eigendaábyrgðinni á bak við Landsvirkjun, ef ég hef tekið rétt eftir. Er það ekki fullseint í rassinn gripið þegar fyrirtæki er komið í bullandi framkvæmdir á fyrirhuguðum virkjunarstað? Hér er ýmislegt, herra forseti, ekki að gerast í þeirri röð eða með þeim hætti sem eðlilegt hefði verið með hliðsjón af því að um stærstu fyrirhuguðu einstöku fjárfestingu Íslandssögunnar er að ræða, þ.e. þessi pakki allur saman fyrir austan.
Ég held að það væri öllum fyrir bestu að menn færu yfirvegað yfir hlutina og ég vil beina til hæstv. ráðherra spurningu: Væri ekki ástæða til að tímasetja það, að t.d. um miðjan nóvember yrði Alþingi með formlegum hætti gerð grein fyrir stöðu þessa máls?