Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Það eru þrjú atriði. Reglur sem verið er að vinna núna er sjútvrn. að vinna í samráði við Byggðastofnun þannig að þær geta vel orðið öðruvísi en þær sem Byggðastofnun notaði við sína úthlutun. Nú er auðvitað liðinn nokkur tími. Menn geta lært af reynslunni, aðstæður geta verið breyttar og menn horfa á þetta af öðrum sjónarhóli. Reglurnar geta því verið öðruvísi þó að þær byggi á svipuðum grunni.
Varðandi 9. gr. og skelbátana þá fengu skelbátar úthlutað vegna aflabrests í skel og því var úthlutað til bátanna samkvæmt þeim reglum sem um það gildir, alveg á sama hátt og til rækjubátanna. Skelkvótinn er bundinn við bátana núna þó hann hafi áður verið bundinn við vinnslurnar. Það er kannski það sem hefur kallað á spurninguna.
Síðan varðandi Ísafjarðarbæ og Þingeyri þá hefur útgangsforsendan í þessum úthlutunum ekki verið sveitarfélag heldur þessar byggðir og þær standast nokkurn veginn á við hafnarnúmerin. Þegar verið er að úthluta til tiltekinna staða þá sýndist okkur eftir þó nokkra yfirlegu að við næðum best til þessara sveitarfélaga með því að úthluta á báta sem væru skráðir í byggðarlaginu, að finna önnur tengsl væri miklu ónákvæmara og kallaði á miklu fleiri matsatriði en þessi skráning segir til um. Og maður væntir þess að menn séu með bátana skráða í heimabyggð sinni.