Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Borist hafa svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur af persónulegum ástæðum óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs í Reykjavík, Drífa Snædal, taki sæti mitt á Alþingi á meðan, en 1. varamaður á listanum, Hjörleifur Guttormsson, er forfallaður.
Virðingarfyllst,
Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv.``
Annað bréfið hjóðar svo:
,,Ég get að sinni ekki tekið sæti á Alþingi í fjarveru Kolbrúnar Halldórsdóttur, 17. þm. Reykv.
Virðingarfyllst,
Hjörleifur Guttormsson,
1. varaþm. á lista VG í Reykv.``
Drífa Snædal hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.
Þriðja bréfið er svohljóðandi:
,,Hér með óskar undirritaður tímabundins leyfis frá þingstörfum, með vísan til 53. gr. þingskapa, og að 1. varaþingmaður hans í Vestf., Pétur Bjarnason, taki sæti á Alþingi frá og með deginum í dag að telja.
Virðingarfyllst,
Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf.``
Samkvæmt upplýsingum þingmannsins er fjarvist hans af persónulegum ástæðum og mun vara í hálfan mánuð.
Pétur Bjarnason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.