Fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum

Mánudaginn 04. nóvember 2002, kl. 16:11:59 (1010)

2002-11-04 16:11:59# 128. lþ. 21.8 fundur 245. mál: #A fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum# (uppsjávarfiskur) frv., sjútvrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 128. lþ.

[16:11]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 54 frá 16. maí 1992, um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum, með síðari breytingum.

Með lögum nr. 54 16. maí 1992, um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum, var kveðið á um það að öll fullvinnsla botnfiskafla um borð í veiðiskipum skyldi óheimil nema að fengnu sérstöku leyfi ráðuneytisins. Í lögunum var fullvinnsla skilgreind þannig að það teldist fullvinnsla ef flökun eða flatning væri þáttur í vinnslu aflans. Í framhaldi af þessu var síðan komið á kerfi varðandi mælingu á nýtingu aflans, sem notað hefur verið að mestu óbreytt síðan. Byggist það á því að nýtingarmælingar fari fram um borð í hverju veiðiskipi sem fullvinni botnfiskafla og að þær mælingar séu grundvöllur fyrir nýtingu aflaheimilda viðkomandi skips. Fiskistofa hefur eftirlit með því að nýtingarmælingar fari fram og að samræmi sé milli útreiknaðrar nýtingar áhafnar og raunnýtingar.

Lög nr. 54/1992, um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum, taka aðeins til vinnslu á botnfiskafla og aðeins þegar flökun eða flatning aflans er þáttur í vinnslunni. Þau taka því ekki til flökunar á uppsjávarfiski eins og t.d. síld eða til vinnslu afla sem felur ekki í sér flökun eða flatningu, t.d. þeirra tilvika þegar afli er hausskorinn eða skorinn með öðrum hætti. Þegar lögin voru samþykkt á sínum tíma var flökun á uppsjávarfiski um borð í veiðiskipum óþekkt hér á landi og ýmis vinnsla sem ekki felur í sér flökun eða flatningu hefur aukist verulega á undanförnum árum.

Í frumvarpinu er lagt til að sú breyting verði gerð á lögunum að öll vinnsla á öllum sjávarafla um borð í veiðiskipum umfram slægingu og ísingu verði háð sérstöku leyfi Fiskistofu og þar með komi önnur ákvæði laganna til með að gilda um alla frekari vinnslu. Þykir nauðsyn bera til að samræma þannig reglurnar um mælingu á nýtingu og eftirlit þannig að þær taki til allra skipa sem vinna afla um borð samkvæmt þessari nýju skilgreiningu. Þó er rétt að geta þess að við vinnslu á ákveðinni tegund eða afurð getur þótt rétt að hafa fastan nýtingarstuðul.

Breytingar á einstökum greinum lúta að þeirri breytingu sem hér hefur verið gerð grein fyrir auk þeirrar breytingar að Fiskistofu er falið að gefa út leyfi til vinnslu en það er í raun í samræmi við þá framkvæmd sem tíðkast hefur undanfarin ár. Er því ekki ástæða til að skýra einstakar greinar nánar en hér er gert.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni 1. umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn.