Þorgerður K. Gunnarsdóttir:
Herra forseti. Rétt út af þessari fyrirspurn langar mig einfaldlega að ítreka hversu mikilvægt það er að þetta greiningar- eða gæsluvarðhalds- og vistunarfangelsi komist á koppinn því að við þekkjum öll þá erfiðleika sem eru til staðar í fangelsismálum. Með þessu fangelsi mundu leysast ýmis vandamál og þá sérstaklega, eins og hæstv. ráðherra gat réttilega um áðan, varðandi greiningu og vímuefnavanda fanga. Hægt væri að einbeita sér meira að hverjum og einum einstaklingi innan fangelsisveggjanna. Það sem ég vildi koma hér á framfæri, herra forseti, er að það er mikilvægt að mínu mati að þetta fangelsi komist í gegn.