Árni Steinar Jóhannsson:
Virðulegi forseti. Ég vil bara örstutt þakka fyrir þessa fyrirspurn sem sett er fram hér um móttökuskilyrði útvarps. Þetta eru viðvarandi vandamál á þó nokkrum stöðum á landinu og ég held að við séum öll reynslunni ríkari hvað varðar lausn þessara mála.
Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin en brýni hann jafnframt til að fylgjast vel með þessum málum. Það virðist samkvæmt reynslunni vera tregða hjá stofnunum að ganga í þessi mál. Framkvæmdarvaldið verður því að fylgjast vel með því að það sé gert sem vilji stendur til að gera og ég treysti hæstv. menntmrh. til þess að gera það.
Þetta eru afgerandi mál og það sýnir t.d. lausnin varðandi GSM-þjónustu í þjóðgarðinum í Ásbyrgi. Þar er gríðarleg aukning sem margir telja að sé á grunni þess að fjarskipti voru bætt og möguleikar til að hlusta á útvarp höfðu skánað. Ég hvet hæstv. menntmrh. til að fylgjast vel með þessum málum þannig að úrlausn fáist svo sem lofað er og efni standa til.