Fyrirspyrjandi (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Herra forseti. Eins og margir vita er Tækniháskóli Íslands búinn að sprengja utan af sér núverandi húsnæði skólans á Höfðabakka 9 þótt húsnæðið hafi hentað ágætlega í upphafi þegar skólinn hafði frekar fáa nemendur. Nú hefur nemendum hins vegar fjölgað mikið og mun gera áfram í nánustu framtíð. Því er nauðsynlegt að huga betur að húsnæðismálunum. Einnig er kostnaður við leigu hár og of mikið pláss fer í ganga og ónýtanlegt rými. Enn fremur er húsaleigusamningur óhagstæður fyrir skólann, bæði hvað varðar viðhald, endurskoðun og uppsagnarákvæði. Leigusamningurinn gildir til að mynda til 2014 og er einungis uppsegjanlegur ef skólinn flytur í eigið húsnæði.
Í nýsamþykktum lögum um Tækniháskóla Íslands er eitt af markmiðum skólans að veita menntun í tæknigreinum sem gerir eðlilega þá kröfu til skólans að hann sé vel tæknivæddur. Húsnæði skólans nú er ekki hannað til þess. Ef skólinn á að vera áfram í núverandi húsnæði þarf að breyta ýmsu. Gert er ráð fyrir fjölgun nemenda í tækni- og heilbrigðisgreinum á næstu þremur árum og reiknað er með að fjölgunin nemi allt að 200 nemendum. Það leiðir til þess að bæta þarf við a.m.k. 10 kennslustofum á næstu árum. Það húsnæði er til staðar í miðálmu hússins þar sem Marel var en til að hægt sé að nýta það húsnæði fyrir skólastarf þarf að endurbyggja álmuna. Þegar allt þetta er skoðað, m.a. sá mikli kostnaður sem fellur til ef álman verður endurbyggð og jafnframt að Tækniháskóli Íslands er einnig háskóli atvinnulífsins og hefur upp á ótal möguleika að bjóða til framtíðar, hnígur allt að því að við eigum að byggja nýtt húsnæði utan um þennan skóla. Og þá kemur upp spurningin: Hvar?
Eftir ágæta ferð, þar á meðal nokkurra þingmanna, til Finnlands ekki alls fyrir löngu til að kynna sér betur vísinda- og tæknimál þar í landi --- Finnar eru miklir brautryðjendur á því sviði --- var alveg ljóst að eitt af grundvallaratriðunum í þeirra málflutningi var að tengja saman tækniháskóla og vísinda- og tæknisvæði þeirra. Það er því mjög eðlilegt að hugað verði að því sama hér á landi.
Ég vil benda hæstv. menntmrh. á að fyrirhugað er að byggja m.a. tæknigarða, ekki bara hér í Vatnsmýrinni heldur einnig í Kópavogi og ekki síður er um metnaðarfulla áætlun að ræða í landi Urriðakots í Garðabæ. Ég geri mér grein fyrir því, herra forseti, að það er nokkuð viðkvæmt mál þegar verið er að flytja skóla úr Reykjavík. Ég minnist umræðunnar þegar lagt var til að Listaháskóli Íslands yrði fluttur til Hafnarfjarðar, allt í einu var það allt of langt frá Reykjavík. Ég vil engu að síður vekja athygli á því að hér yrði um merkilega nýjung að ræða með því að tengja saman Tækniháskólann og þessa tæknigarða sem um er að ræða. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort hugað hafi verið að húsnæðismálum Tækniháskóla Íslands, og þá í hvaða veru.