Fyrirspyrjandi (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Þótt okkur miði að mínu mati hægt þá miðar okkur greinilega áfram og því ber að fagna. Ég vil leggja sérstaka áherslu á að vinnu þessarar nefndar verði flýtt hið fyrsta. Ég veit að það er umfangsmikil vinna hvernig meta eigi fjármögnun slíks kerfis. Engu að síður þurfum við að ýta þessu áfram því að þetta er afskaplega mikilvægt varðandi ekki bara gæðin, eins og ég kom að áðan, heldur líka magnið og fleira fyrir neytendur. Um leið getum við leyst úr þeim vanda sem iðulega kemur fram í ýmsum fyrirspurnum í þinginu þegar verið er að kvarta undan lélegum útsendingum eða útsendingarskilyrðum á nokkrum stöðum um landið. Þó að hér séu mjög góðar útsendingar almennt miðað við önnur lönd þá eru engu að síður nokkrir staðir sem enn ná ekki nægilega vel m.a. útsendingu sjónvarps. Þetta gæti leyst með því að koma digital-kerfinu á því að þá gætum við um leið nýtt okkur gervitunglin sem gætu líka náð út á miðin og þangað sem skilyrði eru lélegri.
Ég ítreka því mikilvægi þess að þessari vinnu verði hraðað. Við eigum að einhenda okkur í þetta. Að öðru leyti þakka ég hæstv. ráðherra fyrir svörin og ég vona að hann komi til með að gera Alþingi grein fyrir því hvernig niðurstaða þessarar nefndar kemur til með að líta út.