Aðstaða til hestamennsku

Fimmtudaginn 14. nóvember 2002, kl. 13:30:27 (1510)

2002-11-14 13:30:27# 128. lþ. 30.11 fundur 334. mál: #A aðstaða til hestamennsku# þál., Flm. JHall (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur, 128. lþ.

[13:30]

Flm. (Jónas Hallgrímsson):

Virðulegur forseti. Hér liggur fyrir till. til þál. um úttekt á aðstöðu til hestamennsku. Auk mín flytja tillöguna hv. þm. Ísólfur Gylfi Pálmason, Einar Már Sigurðarson, Drífa Hjartardóttir, Vigdís Sveinbjörnsdóttir, Arnbjörg Sveinsdótitr og Þuríður Backman.

Tillaga þessi er endurflutt í lítið breyttu formi en hún var áður flutt á 125. löggjafarþingi 1999--2000. Auk mín voru þá á tillögunni hv. þm. Jón Kristjánsson, Árni Johnsen, Ísólfur Gylfi Pálmason og Einar Már Sigurðarson. Tillagan er svohljóðandi, með leyfi forseta:

,,Alþingi ályktar að fela landbúnaðarráðherra að skipa nefnd sem geri úttekt á aðstöðu til hestamennsku á landsbyggðinni og leggi fram tillögur um stuðning ríkissjóðs við uppbyggingu hennar. Nefndin skili áliti fyrir 1. október 2003.``

Í greinargerð sem fylgir tillögunni kemur fram að undanfarin ár hafi einstaklingar, félög og hið opinbera, sem kunnugt er, sameinast um að auka kynningu og sölu á íslenska hestinum, bæði innan lands og utan. Samhliða þessu viðamikla átaki hafa verið byggðar nútímalegar reiðhallir sem jafnframt þjóna víða sem félagsmiðstöðvar hestamanna. Á þetta einkum við um suðvestanvert landið og Norðvesturland. Landbrn. og Reykjavíkurborg hafa ásamt Kópavogskaupstað, Reykjanesbæ og þeim sveitarfélögum þar sem landsmót hafa verið haldin annað hvert ár sunnan lands og norðan styrkt eflingu og uppbyggingu þeirra svæða sem hér um ræðir, þá sérstaklega í sambandi við landsmót og fjórðungsmót. Einnig hafa einstaklingar í greininni byggt upp slík mannvirki og hafa í sumum tilfellum notið aðstoðar fyrirtækja í ferðaþjónustu, t.d. Flugleiða, og er það lofsvert. Landsvæði fjarri höfuðborgarsvæðinu, allt frá Eyjafirði í norðri og austur um land, suður til Hellu á Rangárvöllum, auk Vestfjarða, virðast eiga erfiðara uppdráttar hvað sölu- og markaðsmál áhrærir. Er þá ekki alltaf lélegum hrossum um að kenna, nema síður sé. Frekar má nefna fjarlægð frá komustað erlendra ferðamanna til landsins ásamt aðstöðuleysi þeirra sem hlut eiga að máli. Er nú svo komið að höfuðborgarsvæðið og nærsveitir austan fjalls ásamt afmörkuðum hluta Norðurlands hafa yfirburðastöðu vegna hagstæðrar staðsetningar og framúrskarandi möguleika til þjálfunar, sýninga og sölu á hrossum. Af byggðaástæðum er því tímabært að spyrna við fótum og leita leiða til úrbóta fyrir þau landsvæði sem fjærst liggja markaðnum. Það er alveg ljóst að ekki er dansað í kringum gullkálfinn á þeim landsvæðum sem fjærst liggja höfuðborgarsvæðinu og því erfiðara um vik að koma að þessu með styrkjum eða aðstoð, hvort heldur einstaklingar eða sveitarfélög eiga hlut að máli.

Stefna stjórnvalda hefur verið sú að æska þessa lands skuli eiga jafnan rétt til náms og þar með talið félagslífs, óháð búsetu. Ungt fólk víða um land hefur í auknum mæli haslað sér völl í hestamennsku, bæði í leik og starfi. Vitað er að nýjar og glæstar reiðhallir ásamt keppnisvöllum utan dyra skapa mikinn aðstöðumun milli unglinga sem annars vegar eiga greiða leið að góðu og heilbrigðu félagsstarfi þar sem aðstaða er fyrir hendi til tamningar og þjálfunar hesta og þeirra sem búa í dreifbýli og enga aðstöðu hafa. Það er nöturlegt að vita til þess að unglingar af Norðausturlandi og Vestfjörðum skuli koma mun verr undirbúin til þeirra móta, hvort heldur eru fjórðungsmót eða landsmót, en unglingar annars staðar að af landinu. Við svo búið má ekki standa lengur.

Það er því eðlilegt að móta stuðning ríkisvaldsins við uppbyggingu í greininni og gengur þáltill. út á að hestamennskan verði nýtt sem sóknarfæri fyrir dreifðar byggðir landsins.

Þá má ekki gleyma því að tamning og þjálfun hrossa er orðin viðurkennd starfsemi hér á landi og reyndar fer hróður tamningamanna og hestaþjálfara víða. Við verðum að ætlast til þess að þeir aðilar sem búa úti á landi eigi sömu möguleika, geti undirbúið sig, þjálfað og tekið þátt í þeim mótum sem fram fara, hvort heldur er innan lands eða erlendis. Út á þetta gengur tillagan.

Virðulegur forseti. Að lokum er því beint til Alþingis að tillögunni verði að þessari umræðu lokinni vísað til landbn.