Gísli S. Einarsson:
Virðulegur forseti. Ég þakka enn jákvæðni hæstv. forsrh. En ég ítreka það að við erum að ræða um hvort við ætlum að rjúfa vítahring fátæktarinnar. Ætlum við að leysa fátæktargildruna sem bótaþegar sitja fastir í? Ætlar hæstv. ríkisstjórn að koma á varanlegri lausn í því máli? Eða verður þetta áfram eins og margir bótaþegar segja: ,,Það er verið að refsa okkur, bæði ungum og öldnum, ef við öflum einhverra tekna.`` Þetta er málið í hnotskurn. Ég tek svo sannarlega undir með hæstv. forsrh.: Óskandi er að lausn náist fyrir 2. umr. fjárlaga í næstu viku.