Viðbótarlán Íbúðalánasjóðs

Mánudaginn 18. nóvember 2002, kl. 15:25:52 (1528)

2002-11-18 15:25:52# 128. lþ. 31.1 fundur 245#B viðbótarlán Íbúðalánasjóðs# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 128. lþ.

[15:25]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Um þetta mál hefur ekki verið tekin ákvörðun en þetta er auðvitað eitt af þeim málum sem er til meðferðar í því ferli sem menn þekkja í Alþingi og kallast fjárlagavinna og vinna að afgreiðslu fjáraukalaga. Þetta er eitt af þeim ótalmörgu málum sem þarf að taka endanlega afstöðu til áður en frv. til fjáraukalaga fyrir 2002 og fjárlaga fyrir 2003 verður endanlega afgreitt.