Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessi svör. Það er mjög brýnt að ljúka þessu máli sem allra fyrst vegna þess að svæðið er afar viðkvæmt. Þangað koma mjög margir ferðamenn á hverju einasta ári og menn hafa lent í vandræðum með stígagerð og ýmislegt annað sem tengist þessu svæði. Eins og ég tók fram upphaflega í ræðu minni hefur þetta tekið afar langan tíma og þess vegna hvet ég fjmrh. til að beita sér sérstaklega í þessu máli þannig að því megi ljúka sem allra fyrst.