Kolbrún Halldórsdóttir:
Herra forseti. Mér þykir leitt til þess að vita að hæstv. ráðherra skuli ekki hafa svörin við þessu. Auðvitað er um afar alvarlega hluti að ræða. Þegar Íslendingar hyggjast fara í þá stærstu framkvæmd sem um getur í Íslandssögunni samanlagðri --- bjóða þarf viðkomandi verk út á hinu Evrópska efnahagssvæði og þreifingar eru í gangi --- kemur í ljós að einir sterkustu aðilarnir sem hafa lýst sig reiðubúna til að taka þátt í þessum útboðum draga sig til baka.
Hæstv. ráðherra þarf svo ekki að vera neitt undrandi yfir því að sú sem hér talar sýni þessu máli áhuga. Ég hef haft hann og það veit hún. Þó að hann sé ekki sambærilegur við hennar eða út frá sama sjónarhól hef ég engu að síður mikinn áhuga á þessu máli. Og af því að hún talar um velgengni í sambandi við kaup Alcoa á Reyðaráli ætla ég að minna hæstv. ráðherra á það, sem hún veit alveg jafn vel og við hin sem hér sitjum, að þau kaup eru skilyrt. Þau eru auðvitað skilyrt við það að þetta gangi allt saman upp og að samningar takist um orkusölu.