Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breyting á lögum nr. 14/1998, um Örnefnastofnun Íslands.
Með núgildandi þjóðminjalögum, nr. 107/2001, var þjóðminjaráð lagt niður. Af því tilefni er nauðsynlegt að breyta 3. gr. laga nr. 14/1998, um Örnefnastofnun Íslands, þar sem í 1. mgr. þeirrar greinar er kveðið á um að þjóðminjaráð tilnefni einn stjórnarmann í stjórn stofnunarinnar.
Með frv. þessu er lögð til sú breyting að stjórn Örnefnastofnunar verði lögð niður jafnframt því sem valdsvið og hlutverk forstöðumanns verður gert skýrara en í gildandi lögum.
Er það í samræmi við álit nefndar á vegum fjmrn. um ábyrgð, valdsvið og stjórnunarumboð forstöðumanna sem gefið var út í október 2000. Þar kemur fram að stjórnsýsluleg staða, hlutverk stjórna og staða forstöðumanna sé oft óskýr og af því leiði að óljóst sé hver beri ábyrgð á rekstri viðkomandi stofnunar.
Hlutverk stjórnar Örnefnastofnunar Íslands, að hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar, felur í sér óljós mörk milli ábyrgðar forstöðumanns og stjórnar. Hið sama má segja um hlutdeild stjórnar í ráðningum annarra starfsmanna við stofnunina. Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, er það meginregla að vald til ráðningar annarra starfsmanna ríkisstofnunar sé í höndum forstöðumanna.
Annað meginhlutverk stjórnar samkvæmt gildandi lögum er að vinna að stefnumörkun stofnunarinnar í samráði við forstöðumann. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir að forstöðumaðurinn taki að sér þetta hlutverk og hafi þannig einn umsjón með því. Með hliðsjón af 1. gr. gildandi laga um stofnunina er þó óhjákvæmilegt að haft verði samráð við þær stofnanir sem tengjast varðveislu örnefna og rannsóknum á þeim. Er hér átt við stofnanir eins og Landmælingar Íslands, sem Örnefnastofnun Íslands hefur nú þegar samstarfssamning við, stofnanir og deildir Háskóla Íslands og eftir atvikum aðrar ríkisstofnanir eða aðila sem tengjast starfssviði stofnunarinnar.
Með þessum orðum, herra forseti, legg ég þetta frv. fram og óska eftir því að eftir umræðuna verði því vísað til hv. menntmn.