Kostnaður af heilsugæslu

Miðvikudaginn 20. nóvember 2002, kl. 14:51:40 (1669)

2002-11-20 14:51:40# 128. lþ. 34.6 fundur 329. mál: #A kostnaður af heilsugæslu# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur, 128. lþ.

[14:51]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég tel mig hafa svarað því skýrt í svari mínu við fyrirspurn hv. þm. að ég hyggst ekki beita mér fyrir breytingu á sjúklingagjöldum að svo stöddu. Við höfum reynt að búa svo um hnútana að bráðaþjónusta sé fyrir hendi á Suðurnesjum, og ég endurtek það að ég hef trú á og vona fastlega að þessi deila leysist og að úr þessum vandræðum rakni.