Frsm. meiri hluta fjárln. (Ólafur Örn Haraldsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta fjárln. um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2002.
Nefndin hefur haft frv. til athugunar og í því skyni leitað skýringa hjá fjmrn. og fagráðuneytum varðandi beiðnir um auknar fjárheimildir.
Meiri hluti fjárln. gerir 47 brtt. við frv. sem samtals nema 3.269 millj. kr. til hækkunar. Einstakar tillögur eru skýrðar í álitinu auk þess sem fjallað verður nánar um þær í framsögu.
Nokkur atriði standa þó út af og munu verða tekin til frekari skoðunar hjá fjárln. fyrir 3. umr. Meiri hlutinn leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar hafa verið fram í þingskjölum og gerir það að tillögu sinni að þær tillögur fái framgang og að fjáraukalagafrv. verði samþykkt með framkomnum breytingartillögum meiri hlutans.