Fjáraukalög 2002

Þriðjudaginn 26. nóvember 2002, kl. 14:02:26 (1698)

2002-11-26 14:02:26# 128. lþ. 36.1 fundur 66. mál: #A fjáraukalög 2002# frv., Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 128. lþ.

[14:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil benda hv. þm. á að honum var gefið orðið til að veita andsvar. Ég vil vekja athygli hans á því að betur hefði farið á því að sumt það sem hann sagði hér hefði komið fram í ræðu hans þegar hann mælti fyrir nál. 1. minni hluta fjárln.

Ég vil einnig taka það skýrt fram að okkur sem hér erum ber að fara að þingsköpum Alþingis en sniðganga ekki bein ákvæði þingskapa.