Lækkun tekjustofna sveitarfélaga

Mánudaginn 02. desember 2002, kl. 15:16:14 (1921)

2002-12-02 15:16:14# 128. lþ. 43.1 fundur 285#B lækkun tekjustofna sveitarfélaga# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 128. lþ.

[15:16]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Það ríkir ágætt samstarf með ríkisstjórninni og forráðamönnum sveitarfélaganna um fjármálaleg samskipti. Ég veit ekki betur en að þar hafi náðst samkomulag sem báðir telja sig geta vel við unað. Alltaf eru einhver mál óleyst og það er þá framtíðarinnar að leysa þau.