Samgöngur milli lands og Vestmannaeyja

Þriðjudaginn 03. desember 2002, kl. 17:23:12 (2031)

2002-12-03 17:23:12# 128. lþ. 44.16 fundur 48. mál: #A samgöngur milli lands og Vestmannaeyja# þál., Flm. LB (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 128. lþ.

[17:23]

Flm. (Lúðvík Bergvinsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um bættar samgöngur milli lands og Vestmannaeyja. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson, Sigríður Jóhannesdóttir, Margrét Frímannsdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Virðulegi forseti. Sú tillaga sem ég mæli fyrir hljóðar svo, með leyfi forseta:

,,Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa þriggja manna nefnd í samráði við bæjarstjórn Vestmannaeyja og sveitarstjórn Ölfuss sem kanni möguleika á kaupum, smíði eða útvegun skips sem ekki er lengur í ferðum en eina til tvær klukkustundir milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Skipið uppfylli að öðru leyti allar kröfur sem gerðar eru til siglinga á þessari leið, beri ekki færri farþega en núverandi skip og geti flutt fleiri bíla. Jafnframt skal nefndin skoða og meta þann möguleika að lengja og bæta núverandi ferju þannig að hún þjóni betur hlutverki sínu í samræmi við áðurnefnd markmið um hraða og flutningsgetu.

Nefndin skili tillögum sínum eigi síðar en 1. febrúar 2003.``

Röksemdafærslan fyrir þessu er sú að Herjólfur, ferjan sem gengur á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar, uppfyllir ekki lengur þær kröfur um hraða og flutningsgetu sem gerðar eru til samgangna nú í upphafi 21. aldarinnar. Ferjan er tíu ára gömul og því á margan hátt barn síns tíma. Þróun í smíði og hönnun hraðskreiðra ferja hefur verið ör frá þeim tíma sem Herjólfur var tekinn í notkun árið 1992.

Undanfarin ár hefur landsbyggðin átt undir högg að sækja, ef mælikvarði fólksfjölgunar er notaður sem viðmið um viðgang og vöxt byggða. Fólki hefur víðast hvar fækkað á landsbyggðinni en að sama skapi fjölgað á höfuðborgarsvæðinu. Þessa þróun má ekki síst rekja til þess að mun færri atvinnutækifæri eru á landsbyggðinni en áður var og skiptir stefna stjórnvalda í fiskveiðistjórn miklu í þeim efnum. Sú stefna hefur leitt af sér færri atvinnutækifæri á stöðum sem byggðust upp vegna nálægðar við auðlindina. Þeir staðir njóta ekki lengur þess forskots sem sú nálægð fól í sér með tilheyrandi afleiðingum. Lykilatriðið í því að þessar byggðir fái áfram vaxið og dafnað er að þeim verði sköpuð þannig umgjörð að þær geti keppt um fólk og atvinnutækifæri og þar skipta samgöngur meginmáli. Ljóst er að núverandi samgöngur við Vestmannaeyjar uppfylla ekki þessar kröfur og að staða Vestmannaeyja hefur því versnað til muna undanfarin ár. Flugfélögin hafa hætt reglulegu áætlunarflugi til Eyja og ferðaskrifstofur hafa ekki talið eyjarnar spennandi kost vegna þess tíma sem tekur að fara með Herjólfi. Því hefur dregið talsvert úr ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum frá því sem áður var. Það er því skoðun undirritaðs og þeirra sem að þessari tillögu standa að grípa þurfi til aðgerða nú þegar og því er þessi tillaga borin fram enda skiptir miklu að vilji Alþingis liggi fyrir í þessum efnum. Það flýtir mjög fyrir úrbótum takist að ná um þær pólitískri samstöðu.

Gert er ráð fyrir að nefndin, sem skipuð verði, skili tillögum sínum ásamt greinargerð um áætlaðan kostnað við hverja tillögu eigi síðar en 1. febrúar 2003. Þessi skammi tími endur speglar þörfina á úrbótum í þessu mikilvæga máli.

Virðulegi forseti. Ég hef núna í örfáum orðum rakið þau meginsjónarmið sem búa að baki því að nauðsynlegt er nú þegar að ráðast í kaup eða smíði á nýrri ferju sem gengur milli lands og Eyja. Ekki þarf að fara um það mörgum orðum og það er hverju barni kunnugt að ef landsbyggðin á að geta snúið vörn í sókn er eitt lykilatriði í því að samgöngur á landsbyggðinni verði bættar. Þessar byggðir sem urðu til og döfnuðu og uxu í skjóli þess að þær nutu nálægðar við náttúruauðlindina, við sjóinn, hafa ekki sömu tækifæri í dag og þær höfðu á árum fyrr. Ef menn ætla að byggja upp eitthvað sem gæti komið til móts við þann missi sem þessar byggðir hafa orðið fyrir er algerlega nauðsynlegt að tryggja bættar samgöngur og það er í raun forsenda þess að það takist að byggja upp atvinnuvegi sem geta þá tekið við því fólki sem ekki getur lengur snúið sér að því að vinna úr því sem hafið skilar.

Virðulegi forseti. Ég held að röksemdir fyrir þessu máli séu mjög skýrar og einfaldar. Núverandi skipan mála stenst ekki lengur kröfur tímans. Kröfurnar eru meiri og ríkari í þessum efnum. Því er mikilvægt að gripið verði til aðgerða svo skjótt sem auðið er. Nú veit ég að menn hafa farið utan til þess að skoða ferjur og hafa m.a. skoðað ferju sem ætti ekki að vera lengur í förum milli lands og Eyja en eina klukkustund í góðu veðri. Það held ég að sé valkostur sem eigi að skoða því að skilaboðin til landsbyggðarinnar verða að vera þau að almennur vilji sé á hinu háa Alþingi til þess að halda landinu í byggð. Þetta er því innlegg og tillaga í anda þess, virðulegi forseti.