Krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi

Miðvikudaginn 04. desember 2002, kl. 15:03:11 (2071)

2002-12-04 15:03:11# 128. lþ. 46.7 fundur 367. mál: #A krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., ÁE
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 128. lþ.

[15:03]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Ég sé sérstaka ástæðu til að þakka fyrir þessa fyrirspurn sem hér hefur verið borin fram. Hún byggir á þáltill. sem var flutt af hv. þm. Árna Ragnari Árnasyni sem þar hreyfði mjög merkilegu máli.

Ég vil sömuleiðis þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa framkvæmt þessa ályktun sem gerist nú ekki alltaf með þál. frá hinu háa Alþingi, en mér virðist að þetta sé í góðum farvegi og hér sé verið að taka á mjög alvarlegum vanda á faglegan og skynsamlegan hátt og alveg í samræmi við ályktun Alþingis um það efni.

Krabbamein er alvarlegur vágestur í samfélagi okkar. Þó hér sé talað um krabbamein í meltingarvegi, þá er þetta miklu stærra mál. Hér er verið að hreyfa máli og framkvæma gott eftirlit og byggja upp góðar forvarnir og það ber sérstaklega að þakka þeim þingmanni sem hefur haft frumkvæði í þessum efnum.