Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Þessi umræða sýnir kannski vandann sem við stöndum frammi fyrir, þó hann virðist óskaplega einfaldur í hugum þingmanna eins og hv. þm. Ögmundar Jónassonar sem telur eðlilegast að greiða þetta niður af Símanum. Hvernig mundum við gera það í dag? Jú, við yrðum að senda símnotendum Landssíma Íslands hf. reikning og væntanlega líka símnotendum hjá Íslandssíma, Tali o.s.frv. Það eru komin fleiri símafyrirtæki sem selja þessa símaþjónustu þannig að það væri ekki hægt að gera upp á milli viðskiptavina (ÖJ: Ætlar ráðherrann bara að nota tímann í útúrsnúninga?) Nei, það væri ekki hægt að gera upp á milli. Ég er að skýra hver vandinn er. (ÖJ: Ég var að tala um söguna, liðinn tíma.)
(Forseti (GuðjG): Hæstv. ráðherra hefur orðið.)
Við gætum ekki gert upp á milli símnotenda í þessu sambandi. Allir yrðu að greiða sömu hlutdeild þá í þessum kostnaði.
En við ætlum ekki að fara þá leið. Við förum aðra leið og Íslandspóstur hefur komið til móts við þessa aðila. Við höfum látið vinna að þessari útekt og væntanlegum tillögum í ráðuneytinu til að koma með eðlilegum hætti til móts við þau sjónarmið sem hv. þm. og fyrirspyrjandi, Ögmundur Jónasson, hefur haft í frammi, ásamt mörgum öðrum einstaklingum og aðilum sem hafa komið þessum ábendingum á framfæri.
Ég tel að málið sé í þeim farvegi sem eðlilegt er en alltaf er það spurning hvernig á að niðurgreiða. Ég hef tekið eftir því að tiltekið síðdegisblað hér á markaðnum hefur beitt sunnlensku fréttablöðunum, þ.e. héraðsfréttablöðunum, mjög fyrir sig í sókn eftir niðurgreiðslu og lækkun á þessum burðargjöldum.
Væri hægt að gera upp á milli héraðsfréttablaðanna og síðdegisblaðanna? Það gæti valdið okkur vandræðum. En þetta þarf að skoða.