Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir):
Herra forseti. Í tíð þessarar ríkisstjórnar hefur verið komið á fjármögnunarkerfi fyrir kennsluþátt háskólastigsins í landinu sem er óviðunandi fyrir ríkisháskólana og ávísun á verulegt forskot fyrir sjálfseignarskólana til lengri tíma. Allir háskólar fá sömu fjárhæð fyrir hvern nemanda frá ríkinu. Sjálfseignarskólarnir bæta síðan við skólagjöldum, t.d. Háskólinn í Reykjavík um 180 þús. kr. á ári sem eru um 50% af framlagi ríkisins á nemanda í laga- og viðskiptadeild.
Háskóla Íslands og öðrum ríkisháskólum er ekki heimilt að taka skólagjöld samkvæmt ákvörðun Alþingis. Fjölmennar deildir Háskóla Íslands, svo sem lagadeild og viðskiptadeild, þurfa einnig að greiða um þriðjung af ríkisframlagi sínu til fámennra kennslugreina sem ekki standa undir sér samkvæmt reiknilíkani menntmrn., svo sem vegna kennslu í erlendum tungumálum. Þessi samkeppni og aðstöðumunur milli háskólanna er óþolandi.
Skólagjaldaháskólarnir eru komnir í þá aðstöðu, vegna betri fjárhagsstöðu, að geta boðið í bestu kennarana og eru að gera það. Dæmi eru um að þeir bjóði tvöfalt hærri laun og mun minni kennsluskyldu. Háskólafundur í Háskóla Íslands hefur farið þess á leit við menntmrn. og fjmrn. að háskólanum verði gert kleift að mæta þessari samkeppni, svo sem í laga- og viðskiptadeild, á jafnréttisgrundvelli og hefur bent á að ef stjórnvöld vilji að áfram verði boðið upp á nám í ýmsum fámennum greinum við Háskóla Íslands sé eina leiðin að auka fjárveitingar til skólans.
Menntmrh. hefur nýverið heimilað Háskólanum á Akureyri að koma á laganámi. Þar er fyrir viðskipta- og tölvunarfræðinám sem á í mjög ójafnri samkeppni við einkaháskólana. Ég spyr: Ætlar hæstv. ráðherra Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands að keppa á þessum forsendum?
Kerfið sem komið hefur verið á í tíð þessarar ríkisstjórnar mismunar háskólum eftir rekstrarformi en slíkt þekkist hvergi annars staðar. Það kemur einmitt fram í grein eftir Pál Skúlason, rektor Háskóla íslands, í Morgunblaðinu í gær. Ég spyr því hæstv. menntmrh. hvort hann hyggist breyta fjármögnunarkerfi kennsluþáttar háskóla og jafna samkeppnisstöðu ríkisháskóla og annarra háskóla hér á landi.