Fjáraukalög 2002

Fimmtudaginn 05. desember 2002, kl. 12:38:45 (2152)

2002-12-05 12:38:45# 128. lþ. 47.1 fundur 66. mál: #A fjáraukalög 2002# frv., Frsm. meiri hluta ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 128. lþ.

[12:38]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þau mál sem hv. þm. gerir að umræðuefni voru rædd í fjárln. við lokaafgreiðslu í gær. Þá kom fram ósk hjá fulltrúum stjórnarandstöðunnar um að formaður beitti sér fyrir því að fá þær upplýsingar sem mönnum þótti skorta --- ég tilgreini þar ekki eitt málefni fremur en annað --- til nefndarinnar áður en umræðan hæfist sem hér fer fram. Ég fól starfsliði nefndarinnar að óska eftir því og þykir miður ef þær upplýsingar hafa ekki náð að berast. Hins vegar hafa komið fram upplýsingar sem ég tel nægar til að afgreiða fjáraukalögin að þessu sinni.