Viðvera ráðherra við lokaumræðu fjárlaga

Fimmtudaginn 05. desember 2002, kl. 13:41:34 (2164)

2002-12-05 13:41:34# 128. lþ. 47.91 fundur 294#B viðvera ráðherra við lokaumræðu fjárlaga# (um fundarstjórn), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 128. lþ.

[13:41]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti hefur nú þegar látið gera öllum hæstv. ráðherrum ríkisstjórnarinnar viðvart, enginn þeirra er með fjarvistarleyfi í dag, að þeirra sé óskað við þessa umræðu. Forseti mun einnig verða við þessari ósk hv. þm. --- ef hv. þm. má vera að því að hlusta --- og gefa hæstv. ráðherrum kost á því að koma hingað til fundarins. Ég fresta fundinum í 20 mínútur.