Árni Steinar Jóhannsson:
Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni var þessi tillaga flutt vegna þess að ekki voru settar inn fjárheimildir samkvæmt eindregnum vilja allra nefndarmanna í sjútvn. um stuðning við kræklingaeldi. Nefndin var sammála um að kræklingaeldi skyldi stutt um 5 millj. kr. Það hefur verið lagfært á milli umræðna og þess vegna leyfum við okkur að afturkalla tillöguna.