Kolbrún Halldórsdóttir:
Virðulegi forseti. Það lítur einna helst út fyrir að mistök hafi orðið þess valdandi að Kvennaráðgjöfin féll út úr fjárlagafrv. sem við nú fjöllum um, en af óviðráðanlegum orsökum barst fjárln. ekki umsókn um fjárframlagið frá Kvennaráðgjöfinni fyrr en 3. des. Hún hefur þó átt sinn fasta sess á fjárlögum mörg undanfarin ár. Kvennaráðgjöfin var stofnuð árið 1984 og er meginmarkmið hennar að veita konum ókeypis lagalega og félagslega ráðgjöf, konum sem þurfa leiðsögn til að finna réttar leiðir í kerfinu til að fá úrlausn sinna mála. Hér er um að ræða konur sem ekki hafa ráð á öðrum úrræðum og væri það mikið slys ef þessi ráðgjöf félli niður.
Í þeirri tillögu sem við greiðum nú atkvæði um er lagt til að 700 þús. kr. verði settar til Kvennaráðgjafarinnar á næsta ári og ég treysti því að hv. alþm. sjái alvöru málsins og styðji tillöguna.