Þuríður Backman:
Herra forseti. Í fjárlögum fyrir árið 2003 er lítið um framlög til byggðamála. Það hefur komið hér skýrt fram. Það er til lítils að setja sér metnaðarfulla byggðaáætlun ef ekki á að fylgja henni eftir. Byggðaáætlun er meira en pappír. Það þarf fjármagn til þess að vinna eftir henni. Í umræðum í tengslum við gerð byggðaáætlunar og aðgerðir í byggðamálum hefur því verið hampað að atvinnuþróunarfélögin séu mikilvægur liður í að vinna að þessari byggðaáætlun og einnig mikilvægi þess að efla byggð og atvinnulíf á landsbyggðinni. Það er ekki nægilegt að viðhafa stór og fögur orð. Það þarf að fylgja þessu eftir. 20 millj. kr. eru algert lágmark til að fylgja eftir vísitöluhækkunum og í raun raunhækkunum, þ.e. að raungildi til atvinnuþróunarfélaganna. En við leggjum til 100 millj. kr. því að við viljum stórefla þessar stofnanir.