Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Hér er ríkisstjórnin að fara fram á að fá heimild til að selja jarðir eða hluta af jörðum í einum 16--18 tilvikum í viðbót við þau milli 50--60 sem lögð voru fram í fjárlagafrv. í haust þannig að samtals er þá ríkisstjórnin með í höndum heimildir til að selja upp undir 80 jarðir eða jarðarhluta. Ég gagnrýni það að engar eða afar takmarkaðar upplýsingar fylgja með um það í hvaða tilgangi viðkomandi heimildar sé aflað, hverjum sé ætlunin að selja. Það er ljóst að meðferð ríkisstjórnarinnar á málefnum ríkisjarða og lands í opinberri eigu er afar handahófskennd. Á sama tíma og ríkið gengur fram af mikilli hörku í samskiptum við landeigendur í svonefndu þjóðlendumáli þá selur ríkið jarðnæði úr sinni eigu, oft til einkaaðila sem ekki sitja á viðkomandi jörðum, og veldur það því að aðgangur almennings að þessu landi verður enn takmarkaðri en ella. Þessa framkvæmd þessara mála, herra forseti, gagnrýnum við mjög harðlega en sitjum hjá þar sem í einstökum tilvikum getur verið um eðlilegar heimildir að ræða.