Almannatryggingar

Föstudaginn 06. desember 2002, kl. 14:23:50 (2336)

2002-12-06 14:23:50# 128. lþ. 48.9 fundur 413. mál: #A almannatryggingar# (skerðingarhlutfall tekjutryggingarauka) frv. 149/2002, ÞBack (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 128. lþ.

[14:23]

Þuríður Backman (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra sérstaklega fyrir þær upplýsingar sem hann gefur hér. Eins og ég sagði áðan tel ég mikilsvert að hafa gott samstarf við eldri borgara og öryrkja. Þetta samráð og samráðshópurinn hefur gefið góða raun. Þarna eru góðir kraftar, hópur sem býr yfir mikilli þekkingu og það gleður mig innilega að heyra að það eigi að koma á samráðsnefnd við öryrkja eins og við aldraða.