Endurgreiðsla oftekinna skatta og gjalda

Föstudaginn 06. desember 2002, kl. 14:29:12 (2340)

2002-12-06 14:29:12# 128. lþ. 48.15 fundur 323. mál: #A endurgreiðsla oftekinna skatta og gjalda# (vextir) frv. 131/2002, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 128. lþ.

[14:29]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breyting á lögum um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda. Frv. þetta snýst um vaxtaviðmiðun og það er til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Fyrst og fremst er þetta spurning um hvaða skilgreiningar eru notaðar við vaxtaviðmiðanir.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.