Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja

Föstudaginn 06. desember 2002, kl. 14:30:09 (2341)

2002-12-06 14:30:09# 128. lþ. 48.16 fundur 344. mál: #A Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja# (verslunarlánasjóður) frv. 138/2002, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 128. lþ.

[14:30]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um brottfall laga um Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja (verslunarlánasjóð).

Virðulegi forseti. Þessara laga er ekki saknað af neinum og engin ástæða til annars en að fella þau úr gildi og nefndin leggur til að það verði gert snarlega.