Kolbrún Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég kem hér í annað sinn í tilefni orða hæstv. utanrrh. Hann talaði áðan um náttúruverndarsasmtökin World Wildlife Fund og hann heldur því fram í tvígang hér í ræðustóli að þessi samtök séu að reka baráttu sína á grundvelli rangra upplýsinga.
Hvaða röngu upplýsingar eru það, herra forseti, sem hæstv. utanrrh. telur að þessi samtök séu að reka baráttu sína á? Það fólk sem rekur þessa baráttu hér heima og í útlöndum gagnrýnir íslensk stjórnvöld, og fyrir hvað? Fyrir það að ekki skuli hafa farið fram skilyrt verðmætamat á landinu sem um ræðir, sem á að fórna undir hina gífurlegu virkjun. Fyrir það að aðrir kostir hafi ekki verið metnir faglega. Fyrir það að aldrei hafi verið reiknað út hverju við erum að tapa með því að stofna ekki þjóðgarð á svæðinu sem um ræðir. Fyrir það að umhverfiskostnaður skuli ekki vera reiknaður með inn í dæmið. Og ekki bara það að umhverfiskostnaðurinn skuli ekki vera reiknaður með heldur er ekkert reiknað því að arðsemismat hefur enn ekki verið kynnt eða lagt fram.
Sömuleiðis hefur þetta fólk talað um það að mat á umhverfisáhrifum hafi verið falsað. Það eru líka réttar upplýsingar, þær eru ekki rangar. Úrskurði Skipulagsstofnunar var snúið við með pólitísku handafli framsóknarráðherrans Sivjar Friðleifsdóttur. Þetta eru líka upplýsingar sem þetta fólk hefur, og efnahagslegar mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa enn ekki verið lagðar fram. Þetta eru nú upplýsingarnar sem náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund byggja málflutning sinn á.
Eru þetta rangar upplýsingar? Nei, herra forseti, þær eru allar réttar.