Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Það hefur ekki verið meiningin af hálfu ríkisstjórnarinnar að þagga niður í neinum í sambandi við þessa umræðu. Ég segi fyrir mig að ég hef bara virkilega gaman af því að tala við hv. þingmenn Vinstri grænna og aðra andstæðinga þessarar virkjunar vegna þess að ég er mjög stolt af því sem við höfum verið að gera og ég trúi því reyndar núna að við sjáum fyrir endann á því að undirbúa verkið og það verði af þessum framkvæmdum.
En af því að það hefur verið eitt af því sem hefur verið gagnrýnt að stjórnarformaður Landsvirkjunar talaði um það að náttúruverndarsamtök hér væru studd af erlendum náttúruverndarsamtökum og þannig gætu þau beitt þeim áróðri sem þau hafa gert, þá er ég hér með bréf undir höndum frá Árna Finnssyni þar sem hann segir, með leyfi forseta:
,,Það gefur augaleið að Náttúruverndarsamtök Íslands hefðu aldrei náð þeim árangri og styrk sem þau hafa náð ef þau hefðu ekki átt kost á að halda starfsmann með tilstyrk World Wildlife Fund Arctic Program.``
Þannig að þetta er þá alla vega á hreinu. (Gripið fram í.) Það hefur ekki alltaf verið þannig að menn hafi viljað kannast við þetta. (Gripið fram í: Jú, alltaf.)
Og af því að hv. þm. Össur Skarphéðinsson talar um, og ég er ánægð með að hann styður Kárahnjúkavirkjun og segir að flokkur hans geri það eindregið, þá heyrist mér það nú ekki vera því að hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir og hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir studdu þetta ekki. (Gripið fram í: ... atkvæðisrétt.) En ég vil þakka það að hann styður málið. (Gripið fram í: Skoða þetta ... í okkar flokki.) (Gripið fram í: Þá verður að rökstyðja hvernig ...) Hvaða ósköp, er ekki allt í lagi? Ég segi það. (Gripið fram í: Nei.)
(Forseti (GuðjG): Forseti biður um hljóð í salnum meðan hæstv. ráðherra talar.)
En þegar talað er um pólitískt handafl af hálfu hæstv. umhvrh. í sambandi við Kárahnjúkavirkjun þá er það nú samkvæmt lögum að ráðherra hefur síðasta orðið. Mat á umhverfisáhrifum frá Skipulagsstofnun er ekki síðasta orðið. Og ef það væri þá væri a.m.k. öðruvísi komið með framkvæmdir vegna Norðlingaölduveitu því að þá værum við ekki að ræða það mál, þá væri það búið. Þannig að það stendur ekki steinn yfir steini í því sem hv. þingmenn halda fram.