Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Með þessari þáltill. er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2002, um breytingar á XX. viðauka sem fjallar um umhverfismál og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2001/42, um mat á umhverfisáhrifum, tiltekinna skipulags- og framkvæmda\-áætlana.
Eins og með fyrri mál sem ég hef hér gert grein fyrir vísa ég til greinargerðar og gerðarinnar sjálfrar en þessari tilskipun er ætlað að tryggja að umhverfisáhrif skipulags- og framkvæmdaáætlana séu metin áður en áætlanirnar hljóta endanlega afgreiðslu. Umhverfismat samkvæmt tilskipuninni felur í sér gerð umhverfisskýrslu og kynningu hennar fyrir stofnunum og almenningi þar sem þeim er gefinn kostur á að gera athugasemdir. Áætlanir sem eru unnar af stjórnvöldum eða undirbúnar af þeim til samþykktar á löggjafarþingi, svo og þær sem krafist er samkvæmt lögum og stjórnvaldsfyrirmælum, falla undir þessa tilskipun.
Ákvæði þessarar tilskipunar er að hluta þegar uppfyllt hér á landi en kröfur hennar til umhverfismatsáætlana eru nokkru ítarlegri en núverandi reglur í skipulags- og byggingarlögum og skipulagsreglugerð. Mun því umhvrn. vinna að tillögum að lagabreytingum í samráði við önnur ráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Herra forseti. Þetta er síðasta tillagan af þeim sem hér hafa verið á dagskrá. Ég vil, eins og með fyrri tillögur, leggja til að henni verði vísað til hv. utanrmn. og vænti þess að þessi málsmeðferð auki innsýn nefndarinnar í þessi mál og tryggi það að þau komi tímanlega til umfjöllunar á Alþingi. Eins og fram hefur komið þurfa að sjálfsögðu lagabreytingar sem þessu fylgja að koma hér jafnframt til umfjöllunar og er þá vísað til þeirra nefnda sem fjalla um slíkar breytingar á lögum.