Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum. Mál þetta var sent til umsagnar og var fjallað um það í nefndinni.
Virðulegi forseti. Nefndin gerir tillögu um smábreytingu á frv. sem kemur fram í nál. Breytingin snýst um tilvísun. Að öðru leyti leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.